Liverpool á leið í fyrstu deild.
3.6.2010 | 11:27
|
Gerrard á leið til Real Madrid? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Athyglisverð fyrirsögn.
26.5.2010 | 16:01
Kynlífskaupendur???? Þetta er mjög svo athyglisverð fyrirsögn á frétt. Hingað til hef ég ekki viljað spyrða saman kynlíf og vændi. Ég hef viljað túlka að um sé að ræða tvo gjörólíka hluti. Því hefði mér fundist fyrirsögnin "Vændiskaupendur fyrir dómara" mun heppilegri fyrirsögn við þessa frétt.
Ég vil hins vegar fagna þeirri ákvörðun dómara um að hafa réttarhaldið lokað. Nægileg er niðurlæging stúlknanna og sakborninganna fyrir, þó ekki sé réttarsalurinn fullur af blaðamönnum og forvitnum áhorfendum.
|
Kynlífskaupendur fyrir dómara |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verður forsetans minnst sem hetju eða skúrks?
2.1.2010 | 01:22
Ég tel að nú sé forseti vor Herra Ólafur Ragnar Grímsson í miklum vanda og klóri sé ærlega í kollinum. Hvernig ætlar hann að klóra sig í gegnum þennan vanda. Hann á tvo kosti og hvorugan fýsilegan. Að skrifa undir ríkisábyrgðina á Icesave að ósk vina sinna og fyrrverandi samflokksmanna og endanlega rústa stórsködduðu mannorði sínu. Eða neita að skrifa undir og vísa þeim til þjóðarinnar. Semsagt leyfa kjósendum að velja hvort þeir sætti sig við að steypa sjálfum sér, börnum, og barnabörnum í skuldafen sem ekki sér fyrir endann á. Víst er að þá muni vinir hans og fyrrum samflokksmenn snúa við honum baki.
Ég ætla leyfa mér að spá því að forsetinn skrifi ekki undir þess ríkisábyrgð á Icesave. Fyrir því hef ég eftirfarandi rök. Þeir fyrirvarar í ábyrðinni sem hann notaði í sumar sem ástæðu undirskriftar sinnar þá, var ýtt útaf borðinu af Hollendingum og Bretum. Þeir eru því ekki lengur inní myndinni. Augsýnilegt er að í þessu máli er gjá milli vilja þings og þjóðar. Þegar þetta er skrifað hafa tæplega 57 þúsund einstaklingar hafa skorað á forsetann að neita undirskrift sinni. Það er um það bil einn sjötti þjóðarinnar. En bil milli þings og þjóðar var jú einmitt þau rök sem forsetinn notaði þegar hann hafnaði fjölmiðlalögunum svokölluðu, fyrir tæpum 5.árum. Ennfremur verður það að viðurkennast að forsetinn nýtur heldur lítils fylgis og stuðnings meðal þjóðarinnar eftir útrásarvíkingadekur sitt á undangengnum árum. Mannorð hans er semsagt stórskaddað og hleypi hann þessum ósóma í gegn mun hann endanlega gera útaf við æru sína í embætti forseta Íslands.
Völin og reyndar kvölin er forsetans. Hann á nú rúm 2.ár eftir á yfirstandandi kjörtímabili í embætti forseta Íslands og flest bendir til að hann láti af embætti eftir það. Hvernig sem fer mun ákvörðun hans lifa með þjóðinni langt eftir okkar dag. Sagan mun koma til með að dæma hann annaðhvort sem forsetann sem hafnaði fjölmiðlalögunum og leyfði þjóðinni að kjósa um Icesave. Eða sem skúrkinn sem brást þjóðinni og hrinti henni endanlega í skuldafen Icesave. Hvort ætli hann vilji láta minnast sín fyrir?
|
Áskorun afhent í fyrramálið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Gleðilega hátíð.
24.12.2009 | 09:45
Ég vil óska landsmönnum öllum til sjávar eða sveita gleðilegra jóla. Ég vona að allir njóti hlýju,friðar og kærleiks í faðmi ástvina í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Morgunþáttur á villigötum.
26.11.2009 | 23:18
Nú fyrr í haust var birt skoðanakönnun hlustun á útvarpsstöðvum. Kom þar meðal annars fram að Heimir og Kolla með þáttinn Í bítið á Bylgjunni voru með langvinsælasta morgunþátt landsins. Helsti keppinauturinn var og er Morgunvakt Rásar 2 og stóð hún bítinu langt að baki. Yfirmennirnir á Rás 2 sáu að við svo var ekki búið og skiptu út þáttastjórnendum. Þær stöllur Guðrún og Hrafnhildur voru látnar víkja fyrir þeim Frey Eyjólfs og Láru Ómars.
Að mínu mati var þetta mikið glappaskot hjá yfirmönnum á Rás 2. Freyr Eyjólfs er að vísu frábær í starfi sínu og heldur þessum morgunþætti alveg uppi. Hann er öryggið uppmálað og stígur varla feilspor í dagsrágerð sinni. Því miður er það ekki svo með starfssystur hans hana Láru Ómars. Hver mistökin og mismælið reka önnur í hennar málflutningi. Þetta hefur nú ekkert pirrað mig, þar til morguninn 26.nóvember. Þá var Freyr að lesa upp úr Morgunblaðinu fyrir hlustendur um Kvenfélag Biskupstungna sem hafði farið heldur ótroðnar slóðir við fjáröflun sína. Konurnar í Kvenfélaginu höfðu framleitt dagatal sem þær kölluðu "Tvær úr Tungunum". Dagatalið prýddi myndir af konunum fremur léttklæddum og á stundum naktar. Aldrei sést þó í þeirra allra heilagasta þar sem matur,búfénaður eða efnisrýr fatnaður hylur ávalt herlegheitin. Þetta hefði nú flestum fundist frumlegt og hið besta mál. En ekki virtist stafssystir Freys vera alveg með á nótunum. Hún gjammaði frammí hvort þetta væri ekki mansal? Freyr eins og velflestir landsmenn áttuðu sig á að dagskrárgerðakonan óð þarna villu og reyndi að leiðrétta hana. En hún bætti þá gráu ofan á svart með því svara að fyrst þetta væri ekki mansal þá hlyti þetta að vera vændi.
Nú veit ég ekki hvaða myndir Lára Ómarsdóttir hefur af mansali eða vændi. En ég held velflestir sæmilega upplýstir landsmenn tengi vændi og mansal ekki við myndatökur af kvenfélagskonum alveg burt séð hvort þær eru naktar eður ei. Að láta slíkt og annað út úr sér finnst mér hrein fáviska.
Það er svo álitamál hvort að landsmenn eigi ekki kröfu á því, að fólk sem stýrir morgunþætti á útvarpsstöð sem okkur er skylt að borga af, hafi á að skipa í það minnsta meðalgreind.
Fjölmiðlar | Breytt 30.11.2009 kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Konur yfir fertugt.
17.11.2009 | 16:56
Efirfarandi texta fékk ég sendan á tölvupósti og er hann hafður eftir hinum magnaða blaðamanni Andy Rooney sem er löngu er orðin heimþekktur fyrir pistla sína í fréttaskýringaþættinum 60.minutes. Hann hefur marga fjöruna sopið kallinn á löngum ferli og held barasta að hann hitti naglann nákvæmlega á höfuðið í þetta sinn. 
Konur yfir fertugt – Andy Rooney í 60 mínútum
Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og hér eru nokkrar ástæður fyrir því:
Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig „hvað ertu að hugsa?“
- Henni gæti ekki verið meira sama.
Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því.
- Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn.
Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað.
- Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það.
Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað.
- Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum.
Konur verða skyggnar með aldrinum.
- Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti þína fyrir þeim.
Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.
Eldri konur eru hreinar og beinar.
- Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.
Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambamikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ár gengilbeinu.
Konur, ég biðst afsökunar.
Til allra þeirra karla sem segja; „Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt?“ þá eru hér nýjar upplýsingar:
Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.
Hvers vegna?
Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!
Regards.
Andy Rooney
Forseti alþingis finnst hann yfir okkur hafin.
15.11.2009 | 00:56
Töluverð umræða varð í fjölmiðlum nú fyrr í vikunni vegna atviks þar sem hæstvirtur forseti alþingis Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var í aðalhlutverki. Tollverðir á Kefavíkurflugvelli létu það víst ekki duga að láta hana ganga í gegnum málmleitartæki heldur gerðust þeir svo ósvífnir að leita á henni á eftir. Og það án þess að málmleitartækið hafi svo mikið sem gefið frá sér múkk þegar hún gekk þar í gegn. Ráða mátti á þessum málflutningi að Ástu Ragnheiði fyndist þessar aðgerðir tollvarðanna sér ekki samboðnar enda sé hún engin venjulegur íslenskur borgari.
Reyndar er þetta ekki í fyrsta sinn sem ég verð var við að Ásta Ragnheiður telji sig yfir sauðsvartan íslenskan almúga hafin. Ekki eru nema um 2-3 ár síðan ég heyrði viðtal við hana í útvarpi á aðventunni. Þá var hún reyndar óbreyttur þingmaður en þótti það óskaplega lágkúrulegt þegar þingfundir á alþingi voru að teygjast langt fram í desember. Venjan er að þing fari í jólafrí í byrjun desember. En eitthvað hafði nú verið mikið að gera á alþingi eitthvert árið og því þingfundir staðið fram að jólum. Þingmaðurinn lýsti ánægju sinni með að vera komin í frí þetta árið en bætti síðan við með mikilli hneykslan í röddinni að það væri skelfilegt þegar fundir væru að teygjast fram að jólum því að jólaundirbúningurinn á hennar heimili gæti þá hreinlega ekki hafist fyrr en á Þorláksmessu.
Ekki veit ég hvers lags jólaundirbúningur það er sem ekki er hægt að vinna þó að maður sé í fullri vinnu með. Jólaundirbúningur langflestra íslendinga fer fram á meðan þeir vinna myrkranna á milli fram að Þorláksmessu á hverju einasta ári. Persónulega finnst mér nokkuð ljóst að þessi þingmaður er löngu búin að gleyma því í hverju það felst að vera venjulegur borgari. Venjulegur borgari hér á landi sem tekur því sem sjálfsögðum hlut að á honum sé gerð vopnaleit áður en hann stígur upp í flugvél. Venjulegum borgara sem finnst það barasta eðlilegt að vinna fulla vinnu fram að Þorláksmessu og vera í jólaundirbúningi um leið.
Án nokkurs vafa er forseti alþingis ekkert eini þingmaðurinn sem lítur svona stórt á sjálfan sig. En fyrir mér er þingmaður sem lítur á sig yfir almenning hafin ekki verðugur þess að sitja á alþingi og vera fulltrúi þjóðarinnar út á við.
Nú er mælirinn endanlega fullur.
20.8.2009 | 12:47
Það blasir við hvarvetna í samfélaginu að nú ríkir kreppa hérlendis. Enn ein birtingarmynd þess er það slys sem herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti lendir nú í. Samanburður þess við það þegar hann lendi í samskonar slysi fyrir 10.árum er sláandi svo ekki sé fastara að orði kveðið. Fyrir 10.árum var ljósmyndari með í för sem myndaði forsetann og mátti þá sjá myndasyrpu fyrir og eftir slys. Sérstaklega minnisstætt er mynd þar sem Dorritt stumraði yfir forsetanum þar sem hann lá slasaður í óbyggðum. Þá þótti ekki neitt minna duga en að kalla til þyrlu landhelgisgæslunnar til að flytja forsetann á sjúkrahús. Nú hins vegar veður gjaldþrota þjóð að sætta sig við að fá engar myndir af vettvangi þar sem enginn ljósmyndari var með í för. Samkvæmt fréttum þótti svo forsetinn sjálfur að sætta sig við að vera nú fluttur með sjúkrabíl undir læknishendur. Já það er ekki ofsögum sagt að heimur versnandi fer.
|
Ólafur Ragnar slasaðist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Þjófur þig kalla ef þú stelur nógu smátt, en krýna þig sem konung ef allt er stolið sem þú átt.
5.8.2009 | 11:40
Nú um stundir sitja fjórir piltar í kringum tvítugsaldurinn á Litla Hrauni í gæsluvarðhaldi. Þeir eru grunaðir um bíræfnar falsanir og svik með því að hafa sölsað undir sig fyrirtæki og hafið viðskipti með eignir þeirra. Þeir eru ennfremur grunaðir um að hafa svikið út úr Íbúðarlánasjóði um 50.milljónir króna. Fáir ef þá nokkrir hérlendis efast um að réttlæti þess að þessir ólánsömu ungu menn skuli sitja í gæsluvarðhaldi. Fyrir liggur að þeim væri í lófa lagt að spilla fyrir rannsókn málsins ef þeir væru frjálsir ferða sinna. Í þessu tilviki er því dómskerfið á Íslandi að virka.
Hvernig stendur þá á því að menn sem sett hafa íslenskt samfélag eins og það leggur sig á hausinn, ganga enn lausir um 10.mánuðum eftir að fór að koma ljós hvernig þeir höfðu leikið íslenska efnahagskerfið? Þetta finnst mér ákveðinn besta falli mikill tvískinnungur. Almenningur stendur nú frammi fyrir því að borga fyrir sukkið án þess að hafa hvergi komið þar nærri, og ekki stofnað til neinna skulda. Lífskjör hafa rýrnað, laun lækkað, skuldir vaxið gríðarlega, lífsnauðsynjavörur hækkað, fólk misst störf sín og jafnvel heimili sín allt fyrir græðgivæðingu nokkurra einstaklinga, sem reyndar allir vita hverjir eru. Það virðist engu skipta hverjir sitja hér í ríkisstjórn það er ekki hróflað við þeim mönnum, né þeim eignum sem þeir þó enn hafa undir höndum. Það sannast hér lína úr texta með Bubba Morthens frá því á síðustu öld, á við um íslenska dómskerfið en þar segir : „Þjófur þig kalla ef þú stelur nógu smátt, en krýna þig sem konung ef allt er stolið sem þú átt"
Mér finnst það síður enn svo ósanngjörn krafa almennings að þeir aðilar sem bera höfuðábyrgð á efnahagshruninu, verði handteknir settir í járn og látnir dúsa á Litla Hrauni eitthvað fram eftir öldinniMargt er það glingur sem hvílir nú orðið á hillunni.
30.7.2009 | 17:30
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



daman
jamesblond
jensgud
keli
skrafarinn
lenapena
thuridurbjorg
gunnaraxel
oldo1971
haddih
dora61
glamor
fararstjorinn
olafurfa